Gestabók

Heimir Gudjonson

skrifaði þann 02/05/13 klukkan 15:45

gott framtak hjá þér með síðuna þinn frændi Heimir Guðjónson litlu ávík gaman væri að fá mail frá þeim sem vita hver ég er á ford@centrum.is

Hannibal páll jónsson

skrifaði þann 01/03/13 klukkan 20:55

Við feðgar þökkum góðar viðtökur í hreppnum enda snildar ferð hjá okkur

Hilmar Hjartarson

skrifaði þann 01/01/13 klukkan 16:16

Gleðilegt ár Jón Björn og aðrir lesendur síðunnar. Takk fyrir þessa frábæru síðu sem
ber manni fréttir af því helsta sem gerist norður í Árneshrepp, samanber fréttir nú síðsast
af rafmagnsleysinu fyrir og um áramóti. Ég get ekki leint því hvað mér finnst ríkisútvarpið
standa sig dapurlega með fréttir af landsbyggðinni, hvað þá heldur fréttir úr afskekktum b
byggðum þessa lands þegar svona hamfarir og erfiðleikar ganga yfir. Það er frekar eitt
endalausum tíma í erlendar stríðs og stjórnmálafréttir. Haltu áfram á sömu braut. Takk
fyrir mig. Kveðja. Hilmar Hjartarson píplm.

Tryggvi Gunnarsson

skrifaði þann 26/12/12 klukkan 11:18

Bestu jóla og nýársóskir sendi ég heim í 'Arneshrepp. Og til als frændgarðsins um land alt

Guðjón Ólafsson

skrifaði þann 27/10/12 klukkan 10:40

Þakka góða síðu hérna og gotta að fylgjast með fréttum úr gömlu góðu sveitinni sinni ..
Kveðja
Guðjón Ólafsson ( frá Eyri við Ingólfsfjörð)

http://www.facebook.com/gudjon.olafsson

Sigurður Svansson

skrifaði þann 16/09/12 klukkan 22:09

Bestu þakkir fyrir móttökurnar í dag, 16. September. Og kærar þakkir fyrir að benda okkur á þessa fróðlegu síðu. Hér er margt gaman að skoða.
Bestu kveðjur í Litlu Ávík héðan úr Hafnarfirði

jakob Jónsson

skrifaði þann 14/09/12 klukkan 17:38

Hamingjuósk með afmælið, og þakklæti fyrir fróðleg efni á síðunni þinni. Kveðja

Lydur Sörlason

skrifaði þann 14/09/12 klukkan 08:27

Sæll Jón . Innilegustu hamingjuóskir með afmælið . Og þakklæti fyrir að halda þessari síðu gangandi ,með fréttum að heiman . Bið að heilsa mömmu þinni. kv. Lýður.

Magga og Daddi

skrifaði þann 27/05/12 klukkan 21:40

Erum komin í Kaffi Norðurfjörður og hefur undirbúningur farið vel fram.
Vestan átt í gær eins og hún er verst en nokkuð hlítt. 'Arneshreppur var
eins fallegur og hann getur orðið. Nánast logn og sól . 'Arneshreppsbúum og þeim semeru í hreppnum er boðið í kaffi og með því mánudag 28 mai eh. .
Endilega láta vini vita go vonumst að sjá sem flesta þrátt fyrir sauðburð.
Daddi og Magga

Þórunn Helga Guðmundardóttir

skrifaði þann 20/05/12 klukkan 21:39

Alltaf gaman að kíkja á Litlahjalla.

Sigurgeir Kári Ársælsson

skrifaði þann 23/02/12 klukkan 17:59

Sæll.
Þessi vefsíða er skemmtilegt framtak hjá þér og er öðrum til fyrirmyndar.

Bára & Óli

skrifaði þann 26/01/12 klukkan 20:41

Takk fá að fylgjast með,enda komum við á hverju ári Norðurförð :) Kveðja Bára & Óli

Sveinn Sveinsson

skrifaði þann 04/01/12 klukkan 13:41

Bestu jóla og áramóta kveðjur til vina og vandamanna í Árneshrepp og annarsstaðar á landinu. Vonandi sjáum við ykkur í Kaffi Norðurfjörður
Kv Daddi og Magga

Tryggvi Gunnarsson

skrifaði þann 25/12/11 klukkan 19:06

Bestu jolakveðjur i Arneshrepp, og til allra vina og kunninga um land alt .

Guðjón Ólafsson

skrifaði þann 24/12/11 klukkan 09:24

Gleðileg jól og farsælt komandi nýtt ár

Ingi Þ Gunnarsson

skrifaði þann 14/08/11 klukkan 14:49

Sæll. var að skoða myndir af húsum og mannvirkjum í hreppnum, bendi á góðar myndir frá þessum slóðum á Google ommilar öllum opnar.

mallý

skrifaði þann 20/07/11 klukkan 00:30

Hæ,hæ, frábærar fréttir og myndir gaman að fylgjast með , Kv. Mallý :)

Magdalena Margrét Kjartansdóttir

skrifaði þann 23/06/11 klukkan 12:16

Sæll Jón,

þakka þér fyrir umfjöllun um tilkomandi sýningu okkar í Lækjarkoti Borgarbyggð,
bestu kveðjur

Lýður Sörlason

skrifaði þann 23/04/11 klukkan 20:43

Sæll Jón . Mig langaði nú bara að senda þér óskir um gleðilegt sumar og gleðilegra páska.

Guðbrandur Björnsson

skrifaði þann 20/04/11 klukkan 00:56

Flott siða, með finum myndum og frettum. Bestu kveðjur.

Rúnar Sörensen

skrifaði þann 12/01/11 klukkan 15:50

Sælir bræður í Litluávík og strandamenn allir gleðilegt ár takk fyrir gömlu árin.Já ég er búinn að smakka hákarlinn frá Jóni frá Víganesi gef honum´10+af 10 mögulegum mæli með honum á þorrablótin .Kveðja frá Mosfellsbæ Rúnar og Guðrún

Hilmar Hjartarson pípulm.

skrifaði þann 31/12/10 klukkan 13:57

Sæll Jón Björn. Ég get ekki látið hjá líða meðan gamla árið hangir enn inni að þakka kærlega fyrir þína eljusemi með vefsíðuna Litlahjalla. Að geta fylgst með helstu viðburðum í sinni fæðingarsveit finnst mér skipta máli. Helstu fjölmiðlar landsins eru engan veginn að standa sig varðandi fréttir af landsbyggðinni, því er þinn miðill enn nauðsynlegri. Bestu þakkir fyrir þitt framlag, gangi þér vel á nýju ári. Gleðilegt ár, með kveðju til Sigga bróður þíns

Lýður Sörlason

skrifaði þann 05/12/10 klukkan 01:33

Ég tek innilega undir samþykkt á aðalfundi félags Árneshreppsbúa um það að LITLIHJALLI er brunnur frétta úr hreppnum okkar GÓÐA. Takk fyrir .

Óli Kristinsson

skrifaði þann 26/11/10 klukkan 01:14

Flottar myndir! Kv. Óli

Johanna Sigrun Thorarensen

skrifaði þann 29/10/10 klukkan 14:22

Skemtileg síða og gaman að sjá myndir af sveitinni

Kveðja frá Noregi

(Jóhanna littla á Gjögri)

Jón Hermannsson

skrifaði þann 03/09/10 klukkan 18:40

Takk fyrir að birta upplýsingar um skoðunarstöð Frumherja.

Kv.
JónH.

Sigrún Björk Jakobsdóttir

skrifaði þann 10/08/10 klukkan 11:52

Sæll Jón
Var að kíkja á þessa fínu síðu hjá þér og hef tekið eftir að þú hefur átt nokkrar fréttir í landsmálafjölmiðlum undanfarnar vikur.
Bestu þakkir til ykkar bræðra fyrir móttökurnar og skemmtilegt spjall.
kær kveðja frá Akureyri
Sigrún Björk og Jón

Kristbjorg Þ. Ásgeirsdóttir

skrifaði þann 27/12/09 klukkan 17:49

Ynnilegar óskir um friðsælt nýtt ár , til allra vina og vandamanna Austanlands og Vestan
Hugurinn er alldrei langt frá Heimalandinu handan hafsins. Það er ómetanlegt fyrir
okkur sem búm erlendis að geta skoðað allar þessar yndislegu myndir af Íslensku landslagi, bestu þakkir, Kristbjörg

Lydur Sörlason

skrifaði þann 26/12/09 klukkan 10:51

'Oska öllum 'Arneshreppsbúum nær og fjær gleðlegra jóla og gæfuríkt komandi ár. Sérstaklega vil ég þakka fyrir þessa síðu sem ég heimsækji oft mér til mikillar ánægju. Takk Jón.

Torfi Þ. Guðmundsson frá Ófeigsfirði

skrifaði þann 23/12/09 klukkan 16:37

Sendi Árneshreppsbúum bestu Jóla og Nýjárskveðjur.
Vona að árið 2010 verði ykkur öllum hagstætt.

ingibjörg ófeigsdótir

skrifaði þann 14/12/09 klukkan 14:36

Gaman að skoða þessar myndir, þar sem ég átti heima sem barn á Eyri en ættuð ú Ófeigsfirði

Þór Jakobsson

skrifaði þann 09/11/09 klukkan 15:19

Jón G. Guðjónsson

Sæll Jón,
Ég vil nota tækifærið hér í Gestabók til að endurtaka það sem ég hef margsinnis sagt við þig að elja þín við að afla og halda til haga upplýsingum um hafísinn er ómetanleg. Mikilsvert er að geyma annað eintak af hverri mynd á öruggum stað. En sjálfsagt hefurðu haft þann háttinn á.
Með góðri kveðju,
Þór Jakobsson veðurfræðingur

Jón Guðbjörn Guðjónsson

skrifaði þann 26/10/09 klukkan 19:16

Sæl Gunnur þú verður að vera á Facebook til þess og skrifa þar.
Allt gott héðan.
Kveðja frá okkur í Litlu-Ávík.

Oliver H Oliversson

skrifaði þann 26/10/09 klukkan 17:12

Þakka þér fyrir Rúnar.

Gunnur S. Friðriksdóttir

skrifaði þann 26/10/09 klukkan 12:25

Hvar get ég skrifað undir listann um veginn til ykkar ? (Halda opnum í vetur).
Kv. Gunnur

Jósef S Gunnarsson

skrifaði þann 21/10/09 klukkan 09:26

Bestu kveðjur til ykkar Jón og Siggi...

Með kveðju
Jósef G

Gunnur

skrifaði þann 16/10/09 klukkan 14:10

Gunnur og Kolbrún biðja að heilsa öllum sem við þekkjum í Árneshreppi

Rúnar Kristinsson

skrifaði þann 16/10/09 klukkan 10:28

Jóhanna Sigrún Thorarensen 'A heima að Gyðufelli 10 111 rvk

s 5673829

Oliver H Oliversson

skrifaði þann 15/10/09 klukkan 18:35

Nú vantar mig smá uppl.
Getur einhver gefið mér upplýsingar hvar Jóhanna Thorarensen býr, það Jóhanna dóttir
Valda og Hildar og systir Adolfs sem bjuggu á Gjögri.
Kær kveðja Oliver.
P.S. Alltaf jafn góð síða þessi og gaman að fylgjast með fréttum frá þessu svæði.
Langar helst að flytja þangað norður.

stina@aknet.is

skrifaði þann 19/09/09 klukkan 03:29

Góð síða hjá þér Jóbjörn. Ég fylgist reglulega með því sem er að gerast þarna í Árneshreppnunum.

IHJ

skrifaði þann 16/06/09 klukkan 07:07

Góðra daga og framtíðar óska ég þér og heimasíðu þinni.
Sólríkan dag fengum við þátttakendur í fyrirlestra- og skemmtiferð um sveitina síðastliðinn laugardag og enn var sól þegar okkur var ekið til gistingar í Norðurfjörð upp úr miðnætti.
Bestu kveðjur frá Inga Heiðmari Jónssyni

Guðmundur S Ingimarsson úr Hafnarfirði

skrifaði þann 22/05/09 klukkan 06:19

Frábær síða, vel gerð og skilvirk. Gaman fyrir áhugamann um strandir að geta setið í borginni og fyllst sælunni að norðan. Gangi þér vel með verkefnið.

Elísabet Kristín Jökulsdóttir

skrifaði þann 12/05/09 klukkan 00:00

Góða kvöldið,

mögnuð síða, falleg og skilvirk, fínir drættir, ekki þó búin að skoða í hvern krók og kima, saknaði frétta frá jarðarför Guðmundar í Ávík en það á kannski eftir að koma, en þessi síða er greinilega hið þarfasta þing, og verð ég örugglega fastagestur...

svo mætti auðvitað skrifa frétt um að ísbjarnardrottningin sjálf og ljóðskáldið og ég veit ekki hvað er nú mætt til Trékyllisvíkur sem kattahirðir hans hátignar bróður míns og mágkonu, og lítur nú fram og aftur eftir þremur köttum þeirra og bíður þess að frænka hennar Vííí komi í heiminn,

en það er til saga í smásagnasafni eftir undrritaða sem heitir Rúm eru hættuleg og gerist á Seljanesi.

það er einsog ég hafi verið hér í gær þótt sautján ár síðan ég kom síðast, það er útaf því ég er hér alltaf í huganum, ég sofna alltaf á Seljanesi á kvöldin, eða þá að ég er að syngja fyrir æðarfuglinn á klettunum, en það er yndislegt að koma, ég er búin að fá eitt eða tvö einmanaköst, annars bara verið í skýjunum að lesa, skrifa og hverfa á vit hinnar dulvituðu goðsögu og reyna að ráða í gátuna: Afhverju er ég hér, - en mestmegnis segjandi einsog búddarnir: Ég er hér.

Mig langar að flytja leikrit í Félagsheimilinu, reyndar langað til þess nokkuð lengi, ég læt örugglega verða af því, ef guð lofar, -

Jæja, ég ætla ekki að gera alla vitlausa með blaðrinu í mér, frekar að ég geri alla hamingjusama með því,

og til hamingju með síðuna,

kær kveðja, Elísabet

Jón Bjarnason

skrifaði þann 14/02/09 klukkan 10:16

Kæru frændur og vinir í Árneshreppi.
Mikið var ánægjuleg sú ákvörðun vegamálastjóra að mokað skyldi einu sinni í viku norður í Árneshrepp yfir vetrarmánuðina. Þar með var felld úr gildi fyrrri ákvörðun um að ekkert skyldi mokað norður þá mánuði. Íbúarnir, hreppsnefndin og samgöngunefnd hreppsins sóttu þetta réttlætismál af mikilli einurð. Ég beitti mér þar sem ég gat til þess að þessi mokstur kæmist á. Þetta var góð ákvörðun vegamálstjóra. Til hamngju með árangurinn af baráttunni , Árneshreppsbúar.

Gunnur S. Friðriksdóttir

skrifaði þann 29/01/09 klukkan 22:16

Hæ, það er aldeilis flott nýja húsið á Finnbogastöðum. alveg eins og höll.
Vona að þið hafið það gott þarna fyrir norðan skeið og gaffal eða hvað var það sem þið sögðuð (búin að gleyma því). Bið að heilsa öllum sem ég þekki.

Lýður Sörlason

skrifaði þann 10/01/09 klukkan 22:55

Um leið og óska Jóni og Sigga í Litlu 'Avík ósk um gleðilekt nýtt ár með þaklæti fyrir það liðna. Óska ég öðrum 'Arneshreppsbúum þess hins sama. 'Eg er þakklátur fyrir að fá fréttir að heiman, en veit að ekki er hægt að gera öllum til hæfis.Mér finndist t.d. forvitnislegt að vita meira um uppbyggingju á Finnbogastöðum? Annars allt í mjög góðu og megi góður Guð blessa 'Arneshreppsbúa á komandi ári. Guð blessi okkur öll.

Hörður frá Stóru Ávík

skrifaði þann 09/01/09 klukkan 00:09

Gleðilegt ár og þakka gömlu árin
þakka þér fyrir siðuna og gaman væri að heyra meira af mannlífunu úr þokusveit
og gangi ykkur allt í haginn

kveðja Hörður í Galtarvík

Torfi Þ. Guðmundsson frá Ófeigsfirði

skrifaði þann 01/01/09 klukkan 14:03

Óska öllum Árneshreppsbúum gleðilegs nýs árs um leið og ég vona að kreppan nái ekki að bíta ykkur að neinu ráði. Þakka þér Jónbjörn fyrir að halda úti þessarri ágætu vefsíðu sem ég heimsæki daglega til að fá fréttir úr sveitinni.
Bestu kveðjur.

Jón Bjarnason

skrifaði þann 01/01/09 klukkan 12:13

Heill og sæll Jón Guðbjörn, kæru Árneshreppsbúar og allir lesendur þinnar ágætu heimasíðu, Litlahjalla. Við óskum ykkur öllum farsældar á nýju ári með kærri þökk fyrir góðar stundir fyrr og síðar. Bátsferðin frá Norðurfirði að Horni og móttökurnar í Reykjarfirði í sumar er okkur ógleymanleg.

Með djúpri virðingu fyrir því samfélagi, byggð og lifandi menningu sem þið standið svo dyggilega vörð um og ræktið. Byggðin í Árneshreppi gerir Ísland stærra.

Bestu kveðjur til þín Jón og þökk fyrir framtak þitt og seiglu.
Hlökkum til að sjá ykkur sem fyrst á nýju ári.

Ingibjörg Kolka og Jón Bjarnason

Guðjón Ólafsson

skrifaði þann 24/12/08 klukkan 22:38

Gleðileg jól
ég og mín fjölskylda óskum þér og öllum árneshreppsbúum nær og fjær gleðilegra jóla og farsælds komandi árs án kreppu. :-)

Fyrri síða
1
2Næsta síða
Síða 1 af 2

Atburðir

« Maí »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Úr myndasafni

  • Borgarísjaki ca 20 km frá landi 14-09-2001.
  • Hilmar Hjartarson þenur nikkuna.
  • Sirrý og Siggi.
  • Íshrafl í Hvalvík 13-03-2005.
Vefumsjón