Jón G. Guđjónsson | miđvikudagurinn 22. maí 2013

Kennsl borin á lík sem fannst í Kaldbaksvík.

Frá Kaldbaksvíkurkleif
Frá Kaldbaksvíkurkleif

Eins og komið hefur fram í fréttum var lögreglunni á Vestfjörðum tilkynnt um lík sem ferðafólk hafði fundið í Kaldbaksvík á Ströndum.  Lögreglan fór þá þegar á vettvang, eða að kveldi 17. maí sl. Vettvangur var rannsakaður og líkið flutt til rannsóknar hjá ID nefnd Ríkislögreglustjóraembættisins (kennslanefnd).


Nú í dag hefur kennslanefndin lokið störfum sínum hvað rannsókn þessa varðar.  Niðurstaðan var ótvíræð,  að líkið er af Gunnari Gunnarssyni fæddum 1962.  Þann 12. desember 2012 mun Gunnar Gunnarsson hafa fallið útbyrðis af Múlabergi SI-22, djúpt út af Húnaflóa.

...
Meira
Jón G. Guđjónsson | mánudagurinn 20. maí 2013

Byrjađ ađ bera kennsl á líkamsleifarnar.

Kaldbaksvíkurhorn.
Kaldbaksvíkurhorn.

Kennslanefnd ríkislögreglustjóra byrjaði í dag vinnu við að bera kennsl á líkamsleifarnar sem fundust í fjörunni í Kaldbaksvík á Ströndum á föstudagskvöld. Mbl.is hefur þetta eftir Bjarna Bogasyni, rannsóknarlögreglumanni og formanni kennslanefndar.


Líkamsleifarnar fundust á föstudagskvöld og voru sendar suður morguninn eftir.

...
Meira
Jón G. Guđjónsson | laugardagurinn 18. maí 2013

Líkamsleifar í Kaldsbaksvík á Ströndum.

Líkamsleifarnar fundust í Kaldbaksvík.
Líkamsleifarnar fundust í Kaldbaksvík.

Seint í gærkveldi barst lögreglunni á Vestfjörðum ábending frá ferðafólki að það hafi komið auga á líkamsleifar, n.t.t. beinagrind í Kaldbaksvík á Ströndum.


Lögreglan fór þegar á vettvang.  Kennslanefnd (ID) hefur verið gert viðvart og hafa líkamsleifarnar verið fluttar til rannsóknar hjá nefndinni.  Ótímabært er að gefa frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.  Rannsókn

...
Meira
Jón G. Guđjónsson | miđvikudagurinn 15. maí 2013

Ferming í Árneskirkju.

Brynjar Ingi Óđinsson.
Brynjar Ingi Óđinsson.

Einn drengur fermist frá Árneskirkju laugardaginn 18. maí klukkan 14:00.,og er það Brynjar Ingi Óðinsson. Fermingin fer fram í Árneskirkju hinni nýju og sóknarpresturinn séra Sigríður Óladóttir fermir. Foreldrar Brynjars eru Steinunn Jónatansdóttir og Óðinn Steinsson,og eru þau frá Vestmannaeyjum. Steinunn hefur verið kennari við Finnbogastaðaskóla skólaárið 2012 til 2013,hún er einnig hjúkrunarfræðingur að mennt og vann áður á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum. Þess má einnig geta að Steinunn á ættir að rekja til Árneshrepps. Óðinn hefur verið stundakennari við skólann og kennt smíðar og íþróttir,en hann er viðskiptafræðingur að mennt. Þau hjón eiga tvo aðra stráka Rúnar Kristinn 16 ára og yngsti drengurinn er Jónatan Árni 8 ára sem hefur verið í skólanum á Finnbogastöðum þetta skólaár. Einnig komu þau hjón með tvo hunda með sér í vistina hér í Árneshrepp sem eru miklir vinir barnanna og þeirra fullorðnu,og ekki síður skólabarnanna allra,það er tíkin Fríða og smáhundurinn Rex sem var skírður eftir frægri samnefndri austurískri lögreglumynd sem gekk lengi á RÚV.


Þessi frábæra fjölskylda er nú að hverfa frá störfum við Finnbogastaðaskóla og fara á heimslóðir aftur

...
Meira
Jón G. Guđjónsson | mánudagurinn 13. maí 2013

Vikan hjá lögreglunni á Vestfjörđum 6. til 13. maí 2013.

Ţrjú minniháttar umferđaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar.
Ţrjú minniháttar umferđaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar.
Þrjú minniháttar umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á Vestfjörðum í vikunni. Þriðjudaginn 7. maí minniháttar óhapp á Bíldudalsvegi í Mikladal. Miðvikudaginn 8. maí varð óhapp á Súðavíkurhlíð, þar bakkaði snjóruðningstæki á bíl, minniháttar skemmdir og fimmtudaginn 9. maí  minniháttar óhapp á Ísafirði.  Í þessum tilfellum var um minniháttar skemmdir að ræða og ekki slys á fólki.6 ökumenn voru stöðvaðir fyrir og hraðan akstur,...
Meira
Jón G. Guđjónsson | föstudagurinn 10. maí 2013

Bifreiđaskođun á Hólmavík.

Fćranlega skođunarstöđ Frumherja verđur stađsett á Hólmavík frá 13 til 17 maí.
Fćranlega skođunarstöđ Frumherja verđur stađsett á Hólmavík frá 13 til 17 maí.
Færanlega skoðunarstöð Frumherja hf. verður staðsett á Hólmavík frá mánudeginum 13. maí til föstudagsins 17. maí 2013.
Samkvæmt auglýsingu frá Frumherja er færanlega skoðunarstöðin nú beintengd við ökutækjaskrá og því hægt að afla allra upplýsinga og ganga frá viðskiptum eins og í fastri skoðunarstöð. Tekið er á móti öllum greiðslukortum(kredit og debet),hvort tveggja er háð því að GSM samband sé í lagi. Mælst er til þess að menn komi með ökutæki með númer sem enda 1 til 7 í fyrri ferð,en í seinni ferð sem ekki er búið að ákveða,með endastafi 8,9,eða 0....
Meira
Jón G. Guđjónsson | miđvikudagurinn 8. maí 2013

Vortónleikar.

Kór Átthagafélags Strandamanna.
Kór Átthagafélags Strandamanna.
Hinir árlegu vortónleikar Átthagafélags Strandamanna verða haldnir í Árbæjarkirkju sunnudaginn 12.maí 2013 og hefjast þeir klukkan 16:00. Stjórnandi kórsins er Agota Joó og undirleikari á píanó verður Vilberg Viggósson. Verð aðgöngumiða er aðeins 2.500 krónur. Allir...
Meira
Jón G. Guđjónsson | ţriđjudagurinn 7. maí 2013

Félagsmálastjóri segir upp.

Hildur Jakobína Gísladóttir,félagsmálastjóri Stranda- og Reykhólahrepps.
Hildur Jakobína Gísladóttir,félagsmálastjóri Stranda- og Reykhólahrepps.
Fréttatilkynning:
Hildur Jakobína Gísladóttir, félagsmálastjóri Stranda- og Reykhólahrepps hefur sagt upp störfum sínum sem félagsmálastjóri. Uppsögn hennar tók gildi um síðustu mánaðarmót. Hildur Jakobína hyggur á flutninga til höfðuborgarsvæðisins af persónulegum ástæðum og lætur af störfum í júlí nk.
Félagsþjónusta- Stranda og Reykhólahrepps er yngsta félagsþjónusta landsins en hún var stofnuð þann 1.febrúar 2011 og er þar með komin félagsþjónusta á öll svæði landsins....
Meira
Jón G. Guđjónsson | mánudagurinn 6. maí 2013

Vikan hjá lögreglunni á Vestfjörđum 29. apríl til 6. maí 2013.

Bíll valt á Innstrandavegi í Bitrufirđi í vikunni.
Bíll valt á Innstrandavegi í Bitrufirđi í vikunni.
Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á Vestfjörðum í vikunni sem var að líða. Miðvikudaginn 1. maí hafnaði bíll út fyrir veg og valt á Innstrandarvegi í Birtufirði á Ströndum. Ökumaður var fluttur með sjúkrabíl á heilsugæslustöðina á Hólmavík til skoðunar. Bifreiðin óökuhæf.  Aðfaranótt s.l. laugardags hafnaði bifreið út fyrir veg í Hnífsdal,um minniháttar óhapp var að ræða og ekki slys á fólki.  ...
Meira
Jón G. Guđjónsson | mánudagurinn 6. maí 2013

Orkubú Vestfjarđa ohf. fćr vottun.

Ragnar Emilsson,gćđastjóri OV,Kristján Haraldsson orkubússtjóri og Ari Arnalds frá Vottun hf.
Ragnar Emilsson,gćđastjóri OV,Kristján Haraldsson orkubússtjóri og Ari Arnalds frá Vottun hf.
Orkubú Vestfjarða ohf. hefur fengið vottun á gæðstjórnunarkerfi sitt hjá Vottun hf. og nær vottunin til allrar starfseminnar. Félagið var stofnað á miðju sumri 2001 á grundvelli laga sem þá voru samþykkt á Alþingi. Það byggir á grunni eldra sameignarfélags sem var í eigu ríkis og sveitarfélaga á svæðinu. Hlutverk Orkubúsins nær til alls orkuiðnaðar á Vestfjörðum og er tilgangur þess að virkja vatnsafl og jarðhita á Vestfjörðum, eiga og reka vatnsorkuver, jarðvarmavirki, dísilraforkustöðvar og fjarvarmakyndistöðvar ásamt nauðsynlegum mannvirkjum til dreifingar á raforku og heitu vatni til kaupenda....
Meira
Síđa 1 af 343

Atburđir

« Maí »
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Úr myndasafni

  • Drangaskörđ 18-04-2008.
  • Séđ ađ Felli 15-03-2005.
  • Seđ yfir Trékyllisvík Litla-Ávík nćst.
Vefumsjón