Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 15. desember 2012

Mölin 3.

Sigurður Guðmundsson mun leika á aðventutónleikum Malarinnar.
Sigurður Guðmundsson mun leika á aðventutónleikum Malarinnar.
Sigurður Guðmundsson mun leika á aðventutónleikum Malarinnar sem verða haldnir á Malarkaffi á Drangsnesi mánudagskvöldið 17. desember næstkomandi. Sigurður Guðmundsson er einn dáðasti tónlistarmaður landsins. Hann er landsmönnum að góðu kunnur fyrir störf sín með hljómsveitinni Hjálmum sem hefur um árabil verið ein vinsælasta hljómsveit landsins og gefið út fjölda hljómplatna með sínu einstaka lopapeysureggíi. Ásamt því að leika með Hjálmum hefur Sigurður leikið með fjölda hljómsveita og tónlistarmanna, má þar t.d. nefna Baggalút, Megas og nú nýverið Ásgeir Trausta. Stjarna Sigurðar hefur þó eflaust risið hvað hæst á þeim þremur plötum sem hann hefur gefið út undir eigin nafni með Memfismafíunni. Á þeirri fyrstu flutti hann sígild sönglög, á annarri plötunni söng hann ný jólalög sem samstundis urðu sígild og á þeirri nýjustu fóru Sigurður og félagar til...
Meira
Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 10. desember 2010

Auglýsing hreppsnefndar um afgreiðslu.

Aðalskipulags Árneshrepps 2005-2025

Hreppsnefnd Árneshrepps hefur samþykkt tillögu að Aðalskipulagi Árneshrepps 2005-2025. Tillagan var auglýst og lá frammi til kynningar á skrifstofu Árneshrepps 9. mars til 6. apríl sl. Athuga­semdafrestur rann út þann 27. apríl og bárust um 14 athugasemdir frá 4 aðilum. 

Hreppsnefnd hefur afgreitt athugasemdir og sent þeim sem gerðu athugasemdir umsögn sína.  Gerðar voru nokkrar minni háttar breytingar á tillögunni og hefur hún verið send Skipulagsstofnun sem gerir tillögu til umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu hennar. Þeir sem óska nánari upp­lýsinga um tillöguna og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til skipulagsráðgjafa Árneshrepps (bbjorns@centrum.is) og á skrifstofu Árneshrepps, arneshreppur@simnet.is
.

                                                                     

                                                                      Oddný S. Þórðardóttir
                                                                      Oddviti Árneshrepps

Atburðir

« Maí »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Úr myndasafni

  • Oddviti Árneshrepps Oddný Þórðardóttir heldur ræðu til afmælisbarnsins Jóns G.G. og gesta.
  • Norðaustur hlið Mundi tilbúin með þakpappa á vél.12-11-08.
Vefumsjón